Íslensku dýrin

Klappaðu dýrunum - Opið alla daga

Fjölskyldugarður

Daladýrð er í Brúnagerði á milli Vaglaskógar og Illugastaða í Fnjóskadal. Korters keyrsla frá Akureyri.

Opið alla daga
kl. 11 – 18

Verð:
3 – 12 ára: kr. 1.500
13 og eldri:  kr. 1.700

Hundar mega ekki fara um svæðið. Þeir verða að bíða í bílnum.

kidlingar-knusa-800

Hestar, kindur, geitur, kanínur, Bramha hænur, Þýskar hænur og íslenskar hænur. Kettir og hundur, svin, kýr. Eru meðal dýranna sem þú hittir í Daladýrð. Refir, holdakjúklingar og Ítalskar hænur sem verða í færanlegum hænsnakofa. Við bætum við nýjum dýrum á hverju ári.

Ekki má gefa dýrunum vegna þess að það skapar spennu hjá þeim. Dýrin vilja hafa reglu á hlutunum og þau dýr sem ekki eru úti að bíta gras hafa matmálstíma tvisvar á dag en ef þeim er gefið í tíma og ótíma verða þau óróleg vegna þess að þá eru þau alltaf að bíða eftir því að fá að éta.

Heimalingum er gefið að drekka kl. 13.30 og geta gestir fengið að hjálpa til við að gefa þeim að drekka.

Undir venjulegum kringumstæðum má fara inn í búrin hjá sumum dýranna og knúsa þau. Í takmörkunarástandi má ekki gæla við dýrin.

Umgengnisreglur eru aðalega þær að í Daldýrð eru gestir í öðru sæti því dýrin eru alltaf í því fyrsta. Ganga verður um dýrin af virðingu og ekki með læti eða hávaða.

Kettir og ketlingar eru vinsælir og erum við með tvö kattabúr sem eru opin sitthvorn klukkutímann til skiptis svo kettirnir fái nægilega hvíld. Kettirnir sem búa í Daladýrð eru læðurnar Rósa, Lísa og Pikkatsjú og svo Bræðurnir Brandur og Brandur. Kettlingarnir sem læðurnar eignast dvelja í Daladýrð yfir sumarið og fá svo ný heimili á haustin. Alltaf er starfsmaður hjá köttunum til að passa uppá að allt fari vel fram og aðstoða.

íslenskt handverk

Í Daladýrð er einnig sérvalið íslenskt handverk sem er unnið úr hráefni úr landbúnaðar afurðum og einnig gripir sem minna á sveitalífið.
Flestir listamennirnir og hönnuðirnir sem gera gripina eru úr nærumhverfi Daladýrðar en nokkrir úr öðrum landshlutum

shop-daladyrd
Daladýrð fyrir fjölskylduna!
Í Daladýrð nýtur fjölskyldan samverunnar, hittir húsdýrin og kynnist dýrum frá íslenskri náttúru. Klappaðu kanínu, hittu hestana, grísina, kisurnar, kindurnar, geiturnar og allskyns önnur dýr. Hoppaðu í heyinu og njóttu lífsins. Dýralífið í Daladýrð er einstakt og yndislegt. Þú og þeir sem þér eru kærir fyllast jákvæðri orku og gleði yfir margbreytileika tilverunnar. Velkomin!